Sérsmíðum eftir máli fyrir sturtuklefa og sturtuskilrúm eftir þínum hentugleika
Allir sturtuklefar og sturtuskilrúm sem Samverk framleiðir eru sérsmíðaðir og því getur þú alltaf fengið klefa sem passar inn á baðherbergið eftir þínum hentugleika.
Við mælum, framleiðum, útvegum festingar og setjum upp, allt verkið á einni hendi og ein ábyrgð á verkinu. Vönduð og góð vinnubrögð.
Útfærslur á sturtuklefum eru margar og fara þær meðal annars eftir lögun og staðsetningu sturtuklefans í baðherberginu.
Hér að neðan má sjá mögulegar útfærslur.
Sandblásum á spegla og gler.
Sturtuskilrúm sem eru til á lager.
Stærðir: 900 mm x 2100 mm, 1000 mm x 2100 mm og 1100 mm x 2100 mm.
Allar festingar fylgja með í pakkanum sem og sílikon.


