SÓLVARNARGLER

  • SÓLVARNARGLER er gler sem ætlað er að draga úr áhrifum sólarljóss og minnka gegnumstreymi hita inn í húsnæði. Hægt er nota sólvarnargler sem hluti af öðru einangrunargleri.

Sólvarnargler eru bæði til glær og lituð, með eða án spegilhúðar. Til eru margar tegundir sólvarnarglers sem framleiddar eru af hráefnisframleiðendum víða um heim. Það má benda á kosti þess að velja glertegund sem er lagervara hér á landi til að afgreiðsla gangi hraðar og einnig til seinni tíma viðhalds og brota.

Sækja bækling: Stopray Vision 50

Sækja bækling um Energy N