SANDBLÁSIÐ GLER

Sandblásið gler er gler með mattri áferð þar sem áloxíði er blásið á. Möguleikarnir eru endalausir og er það hér sem hugmyndaflugið fær að ráða. Einnig getum við málað sandblásið gler og spegla sem gefur en skemmtilegri möguleika.

Hægt er að nýta sandblásið gler í fjölbreytt notagildi t.d. sem skilrúm innanhúss, glerhurðir, sturtuklefa, baðherbergi, eldhús, handrið, húsgögn, skilti og skrautspegla.

Speglar eru oft sandblásnir aftan til á húðina svo ekki sé hægt að koma við sandblástursflötinn að framanverðu og einnig er hægt að setja ljós fyrir aftan spegilinn og þá kemur ljósið í gegnum sandblásna svæðið.

Leitið ráða hjá sölumanni fyrir frekari upplýsingar.