AFHENDING

Samverk annast heimkeyrslu á gleri á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi á eigin flutningabílum eða á vöruflutningamiðstöðvar eftir samkomulagi.

Hringt er í viðkomandi með fyrirvara til að athuga hvort hægt sé að taka á móti glerinu ákveðinn dag.

Þægileg og örugg þjónusta, glerið er alltaf afhent heilt af okkar eigin flutningabílum og þarf ekki að tryggja það sérstaklega.

Ef glerið er flutt pakkað og sett á vöruflutningamiðstöðvar er viðskiptavinum bent á að tryggja glerið í flutningi frá vöruflutningamiðstöðinni og á áfangastað, við getum aðstoðað við það.